Skilmálar

Upplýsingar um fyrirtækið/söluaðilan

Julia Mai, Grettisgata 98 , juliamaiart@gmail.com .

(Julia Mai Art) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar 2-5 dagar eftir að greiðsla hefur verið staðfest.

Viðskiptavinur getur fengið vörurnar sendar í pósti eða sótt þær i 101.

1. Sending

Heimsendingargjald bætist við verð þegar gengið er frá greiðslu. Allar myndir eru sendar í pappahólkum eða umslag heim að dyrum með Íslandspósti, sé ekki unnt að taka við sendingunni þarf að sækja hana á næsta pósthús. 

Kjósi viðskiptavinur að sækja vöruna gengur það að sjálfsögðu líka og kostar ekki aukalega. 

2. Sækja

Veljir þú að sækja pöntun frekar en að fá hana senda getur afgreiðsla tekið 2-5 virka daga. Þú færð tölvupóst um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar.

 

Afhending pantana fer fram á heimili Juliu.  Pantanir eru afhentar eftir samkomulag alla virka daga og um helgar.

 

 

Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum og birt með fyrirvara um villur. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar.

Julia Mai Art áskilur sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða séu villur í verðum þegar pantað er.

 

Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Engin skilarétt er á original listaverk. Vil viðskiptavini skila vöru er boðið upp á inneign sem er i gildi 1 ár frá dagsetningu sem vöru er skilað.

Skil geta farið þannig fram að kaupandi skili vöru personulega eða sendi okkur vöruna með pósti á eigin kostnað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðslu ef þess er krafist.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.